Val á sjúkrakassa
Eins og vinnustaðir eru margir, eru jafnmargar og mismunandi samsetningar af sjúkrakössum sem henta, allt eftir aðstæðum og fjölda starfsfólks á hverjum stað. Ef sérstakar hættur eru á vinnustað, t.d. vegna efna eða eðlisfræðilegra þátta, getur þurft að taka sérstakt tillit til þess við val á búnaði í sjúkrakassa.
Miða skal sjúkrakassa og staðsetningu við það að hægt sé að nálgast þá innan tveggja mínútna.
Allir ættu að kunna skyndihjálp, það er aldrei að vita hvenær þörf er fyrir þá kunnáttu. Með aukinni skyndihjálparþekkingu starfsmanna er hægt að bæta við sjúkrabúnaðinn.
Öryggisfulltrúinn eða framkvæmdastjóri fyrirtækisins ber ábyrgð á sjúkrakössum, að rétt innihald sé í þeim og að því sé alltaf viðhaldið rétt. Yfirfara þarf sjúkrakassan að minnsta kosti einu sinni á ári, það fer þó eftir notkun. Ef hún er mikil þarf að gera það oftar.
Hér er dæmi um innihald sjúkrakassa sem þarf að vera til staðar á flestum vinnustöðum.
- Þrýstibögglar minni gerð
- Þrýstibögglar stærri gerð
- Brunagel, flaska og grisja
- Sárabindi
- Teygjubindi
- Augnskol
- Öndunargríma
- Hanskar
- Flísatöng
- Skæri
- Heftiplástur
- Skurðplástur
- Plástur
- Álteppi
- Fetill
- Kompressur
- Fingurhulsa
- Sáragrisja
Við hjá Sölutraust sérhæfum okkur í sjúkrakassa-, skyndihjálpar- og öryggislausnum og veitum m.a. klæðskerasniðna þjónustu tengt því, þar á meðal áfyllingarþjónustu án aukagjalds, en það er jú nauðsynlegt að allt sé hægt að stóla á að allur búnaður sé til staðar þegar á reynir.
Smelltu hér til að skoða fjölbreytt vöruúrval af sjúkrakössum- og skyndihjálparvörum.